Jón Þorláksson 1744–1819
49 LJÓÐ — 29 LAUSAVÍSUR
Jón Þorláksson fæddist 13. desember 1744 í Selárdal í Arnarfirði en ólst að nokkru upp í Fljótshlíðinni. Jón útskrifaðist úr Skálholtsskóla 1763 með góðum vitnisburði. Næstu ár var hann í þjónustu tengdafeðganna Magnúsar Gíslasonar amtmanns og Ólafs Stephensens amtmanns. Jón vígðist til Saurbæjarþinga í Dalasýslu árið 1768 en varð að láta af prestskap vegna barneignar með Jórunni Brynjólfsdóttur í Fagradal og fór allt á sömu leið er hann fékk aftur prestsembætti. Jón fór því næst að vinna hjá Hrappseyjarprentsmiðju sem stofnuð MEIRA ↲
Jón Þorláksson fæddist 13. desember 1744 í Selárdal í Arnarfirði en ólst að nokkru upp í Fljótshlíðinni. Jón útskrifaðist úr Skálholtsskóla 1763 með góðum vitnisburði. Næstu ár var hann í þjónustu tengdafeðganna Magnúsar Gíslasonar amtmanns og Ólafs Stephensens amtmanns. Jón vígðist til Saurbæjarþinga í Dalasýslu árið 1768 en varð að láta af prestskap vegna barneignar með Jórunni Brynjólfsdóttur í Fagradal og fór allt á sömu leið er hann fékk aftur prestsembætti. Jón fór því næst að vinna hjá Hrappseyjarprentsmiðju sem stofnuð var 1773. Þýddi hann þá kvæði eftir norska skáldið Kristian Tullin og voru þau gefin út, ásamt nokkrum frumortum kvæðum hans, í Hrappsey 1774. Sama ár kvæntist Jón Margréti, dóttur Boga Benediktssonar í Hrappsey og hófu þau búskap í Galtardal. Árið 1788 fékk Jón að vígjast til Bægisár í Öxnadal í Hólabiskupsdæmi. Margrét, kona Jóns, og Guðrún, dóttir hans, urðu eftir í Galtardal og bjó Margrét þar til dauðadags 1808. Jón bjó á Bægisá til æviloka og þar vann hann sín merkustu bókmenntastörf. Þar þýddi hann Tilraun um manninn eftir enska skáldið Alexander Pope og Paradísarmissi eftir enska skáldið John Milton. Þá þýddi hann einnig Messíasardrápu eftir þýska skáldið Friedrich Gottlieb Klopstock. Jón orti og mikið sjálfur og var margt af því í léttum dúr. Hann dó 21. október 1819. ↑ MINNA