Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Bjarni Pálsson landlæknirFyrsta ljóðlína:Hví er heilbrigðin / harmi lostin
Höfundur:Jón Þorláksson
bls.152–156
Viðm.ártal:≈ 1775
Tímasetning:1779
Flokkur:Minningar- og erfiljóð
Skýringar
Eftirfarandi skýring er við ljóðið í Ljóðmælum Jóns:
Bjarni var fæddur 12. maí 1719 en andaðist 8. sept. 1779. Æfisaga hans er prentuð í Leirárgörðum 1800, og stendur þar þessi útfararminning á bls. 109–112, og er kölluð „Hagbrigði Heilbrigðinnar við andlát sál. landphysici Bjarna Pálssonar“. Eptir einu handriti. 1. Hví er Heilbrigðinharmi lostin, gagns og glaðværðar guðdómlig móðir? Sýnist mér úr brjósti sem blóð renni. Hverr hefir hana hjörvi særða?
2. Hana hefir Sótthjörvi særða og ben blóðugri á brjóst lostið er hún bana bjó Bjarna Pálssyni, frómum landlækni og lærðum mjög.
3. Hann var hermaðurHeilbrigðinnar öflugastur einn á Íslandi. Hafði hann lengi *hennar garð varið í gegn árásum og ógn sóttar.
4. Sífellt sóttust þauSótt og Bjarni: hún með harðfengi, hann með visku og með góðgjörnu göfuglyndi. Hefir manngi meir henni mót gengið.
5. Lengi var hann vörnvoru landi og stökkti sterkri styrjöld Sóttar. Hverjum hildarserk sem hún klæddist varð henni starf strítt þó stundum ynni.
6. Minnisstæð mættimanndáð Bjarna þegar *flagðið fór af Frans hingað. Mikið vann hún vont, en verra mundi nema Bjarna bót bjargað hefði og brotið bölvætt þann á bak aftur.
7. Varði hann vitsmunumog virta mennt, varði hann fémunum og fjörs efli til að hefja hag Heilbrigðinnar og gjöra garð hennar glæsiligan.
8. Birtið þér, brúðir,sem börn alið! Var hann yður eigi til aðstoðar? Fyrir fulltingi han og framgöngu njóta nærkonur náms og launa og þér handhjálpar hálfu meiri.
9. Kunna eg Bjarnakostamæran, mikinn mannvitring og menntavin, ljúfan í lifnaði, lastvarasta mann, fróman og fróðan og fégjafa.
10. Mun til meðaumkaní mannsbrjósti, ef hún eigi var altöm Bjarna? Hví var honum þá svo hart goldið og launað láti fyrir lækningar?
11. Hvar var Heilbrigðihetju að duga móti Sóttar sókn og sigð dauða? Vann hún aldrei á orku Bjarna fyrr en fal náði foringja síns.
12. Laust hún þá loksinslækni frægan við barm Heilbrigði banasári og hennar hjarta hjó svo nærri að sollin brjóstben mun batna seint.
13. Síðan situr húnmeð sárs-auka, litverp og lotin við leiði Bjarna og er sem *oni að upp af honum muni líknargras loksins spretta.
14. Lengi mun þó lifalofstír Bjarna, lifa listir hans og lands elska, lifir sálin sjál; í sælu guðs. Hvað er þá dáið? Duft og mæða. Athugagreinar
3.6 hennar garð varið] < varið hennar garð; í útgáfu. Hér breytt vegna stuðlasetningar.
6.3-4 ;flagðið af Frans; er ;Franzósinn; svonefndi. |