Mig langar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Mig langar

Fyrsta ljóðlína:Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) AbAbCdCd
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1909

Skýringar

Birtist upphaflega í ljóðabók Jónasar, Dagsbrún.
Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma,
þegar leiftrar á árroðans bál,
heyri ég raddir í eyrum mér óma,
koma innst mér frá hjarta og sál:
Hér er kalt, hér er erfitt að anda,
hér er allt það, sem hrærist, með bönd!
Ó, mig langar til fjarlægra landa,
ó, mig langar að árroðans strönd!

Ég vil bálið, sem hitar og brennur,
en ég bölva þér, nákaldi ís.
Ég vil aflþunga elfu, sem rennur,
ekki óhreina pollinn, sem frýs.
Ég vil ástblómið rauða, sem angar,
ekki arfa né þurrkaðan vönd.
Ó, svo langt burtu héðan mig langar,
ó, mig langar að árroðans strönd!

Ég vil lyfta þér, löngun míns hjarta,
upp í ljóshvolfin skínandi há,
ég vil horfa á þig, blómið mitt bjarta,
sem í bernskunnar draumi ég sá.
Ég vil hlusta á hrynjandi strauma,
ég vil höggva mín arfgengu bönd!
Ó, mig langar í land minna drauma,
ó, mig langar að árroðans strönd!