SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3128)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 6Pontus rímur – sjötta rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Fram eg selda þjóðum þátt
bls.62–72
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Sjötta ríma Ferskeytt
1. Fram eg selda þjóðum þátt;þrot að kvæðum geisa; nú skal felldan fyrra hátt, á fætur ræðu reisa.
2. Stirðnar lag, en stopult gengurstjórn af tungu minni; því minn hag að hyggju strengur herðir þungu sinni.
3. Hvör sem vill um fríðar frúrfremja mansöngs smíði, hann með snill þarf huga úr hrinda bann og stríði.
4. Enginn neitt að yrkir par,sem er með þanka sárum; hugurinn streitt fer hér og þar sem hafskip vankar á bárum.
5. En þó mitt sé orðbragð stirtungum meyjunum bjóða, bið eg það sé vorkunn virt af virðing allra þjóða.
6. Þó eg sé ekki alltíð hraðurorð eður dikt að vanda, mér hefur nokkur styggðar staður með sturlan borið til handa.
7. Eg hefi á minni æsku tíðangurs stigu kannað; þar með örlög yfrið stríð alla gleðina bannað.
8. Hefi eg nú það næst var árnokkurt mótkast fengið, oftast lygar, fals og fár, fátt að óskum gengið.
9. Mun ei þar fyrir mengið flestmig í sorgum eyma; sá kann hvör við harminn bezt, sem hefur hann ekki að geyma.
10. Er í valdi einskis mannsætlan guðs af venda; fel eg mitt ráð í hendur hans, hvar sem það vill lenda.
11. Því mun eg segja sorgar kvittsjálfan mig að græta, ef so fer, að angur mitt engin mey vill bæta.
12. Kalla eg bezt að kefja hryggð,kæti drottna láta, líða flesta leynda styggð og líka þrotna játa,
13. inna heldur öðrum frá,ósköp sólgin herða, hvörsu eldur elsku má með æru fólginn verða,
14. hata allt það heiðri er móthefta stríðan losta; forðast skaltú lýti ljót, en lifnað fríðan kosta.
15. Stuttur losti langri hryggðlýði plagar að kvelja; hvörn sem kosta drýgir dygð, dugi hagur að velja.
16. Víkjum þar til kóngsson kemurklén í skemmu drósar, leika og alla fordild fremur; fagna meyja ljósar.
17. Býður sæti buðlungs kundbrúðurin sitt að veita, en hann vill á önga lund, oft því gjörði að neita.
18. Settist lægra nokkuð niður,nam so fjölda tytta; Sídónía blíðust biður brúðunum dægur stytta,
19. vita ef dans og sætum söngsínum gleymdum hefði, drósum stytta dægur löng dýrum, meðan hann tefði.
20. Pontus svarar brúði bráttbeint af mjúkum munni: „Eg fæ ei gleymdum þessum þátt þeim eg aldri kunni.“
21. Síðan kættist kóngsson þá;kortast stundir langar, frúinna hjörtun full með þrá Fíenis pílan stangar.
22. Sídónía fagra frygðfékk af Pontus orðum, síðan alla sannar dygð, sem sögð var henni forðum.
23. Jungfrú tekur tigin hanntil sín, er menn hæla, segist ætla enn við hann annað fleira mæla.
24. „Lengi hafið,“ segir listug frú„í landi dvaldar stundir, en aldri saman, áður en nú, okkar bárust fundir.“
25. Pontus segist sinni ferðsjálfur ekki ráða og svo sína alla gjörð öðrum mönnum háða.
26. „Eg vil spyrja aftur þig,áður en ræðan dvínar: hvörninn lízt þér, halur, á mig eður hýrar jungfrúr mínar.
27. „Yðar fegurð og andlit bjart,“anzar Pontus vífi, „vænan lit og vegligt skart og vöxt á yðar lífi.“
28. „Slíkur sómi,“ sagði hann,„sem nú hef eg fundið, hjartað víst að hressa kann, sem hart er sorgum bundið.“
29. „Hafið af frúnum fengið náð?“fylkirs spurði dóttir, „riddara því þér drýgið dáð og dýrar mennta gnóttir.
30. Ef vaskur riddari verða má,að vísu brjótur sverða, hvörja þér í heimi þá helzt þess aktið verða?“
31. Pontus anzar orðum þáeftir ræðu langa: „Þenkjan mín er þar til smá þeirra náð að fanga.“
32. Jungfrú segir ættlegg hansallan dýrstu manna. „Þér eruð verðir þessa lands að þjóna æðstum svanna.“
33. Slíkar ræður fagrar fyrstfóru þeirra á milli; þar af frúnnar fengu lyst og fagna ungum stilli.
34. Aftur talar í annað sinnenn við reynir sverða: „Þér skuluð riddari mætur minn, mildings arfinn, verða.
35. Ef eg nokkra fregna frægðfagra af verki þínu, það mun gjöra góða hægt og gleði hjarta mínu.
36. „Náðuga frú,“ að kóngsson kvað,„kalla eg skyldu mína yðar náð að þakka það og þjónkan alla sýna,
37. ef guð minn vildi gefa og tjágjörðir riddara snjallar, þær sem hefði þjónkan á þér og frúnnar allar.“
38. Mildings dóttir mælti senn,meyja flestra jafni: „Þó þér riddari ekki enn orðnir séuð að nafni,
39. reikna eg yður riddara minnríki og lönd að verja; þér skuluð nú í þetta sinn það með eiði sverja
40. mér fyrir allar aðrar frúrmeð æru og dygð að þéna; þá mun harla hugurinn trúr af hjarta aldri réna.“
41. Pontus jungfrú þakkar þaðþá með bezta hætti, síðan guð þess blíðan bað beint því orka mætti.
42. „Ef þér oss,“ segir öðlings mær,„ódygð viljið þenkja, þaðan af sjálfar viljum vær vináttu okkar krenkja.“
43. Anzar kóngsson ekki trauður,auðmýkt birti sína: „Vildi eg heldur vera dauður en virðing sneyða þína.“
44. Jungfrú biður blíðan þaðbinda tryggðar máli, so það eigi sterkan stað, studdan öngu táli.
45. Lofaði síðan ljósri frúlestir grænna skjalda upp á sína æru og trú með orð og verk að halda.
46. Jungfrú gefur gullhring einngram af sinni hendi; í ljósum málmi stendur steinn; stillirs son hann kenndi.
47. Biður hún hringinn buðlungs sonbera sinna vegna, segir þetta vissa von, sem vel má síðar gegna.
48. Pontus þakkar skorðu skjóttskraut fyrir utan vanza, hringinn dró á fingur fljótt og fór með henni að dansa.
49. Þá til fríðrar kóngsson klárkveiktist ástar bandi; í þeirra beggja brjósti stár blíða horfin grandi.
50. Harðasta kann hugurinn ástharla mjúka binda og augu þau sem skyggn eru skást í skýrum höfðum blinda.
51. Pontus þar næst kvæði kvað;kvikna hjörtun meyja; allar lofuðu einn veg það og so stundir þreyja.
52. Þaðan af hvör að þenkti frúþað um ævi langa, að jungfrú væri sælust sú, er svoddan mann réð fanga.
53. Þegar höfðu sungið sínsérhvör kvæði á enda, jungfrú ljós að lætur vín lofðungs arfa senda.
54. Síðan vilja af brúði bráttbáðir orlof þiggja og so ganga á annan hátt inn fyrir ríkan tiggja.
55. Jungfrú leyfir þetta þeim,þakkar sína kómu; síðan fóru til hallar heim herrar þeir enir frómu.
56. Áður en skildi kóngsson kærvið kerrur öglis fitja, aftur bað þá öðlings mær sem oftast þangað vitja.
57. Þegar voru viknir burt,vífið spyr hið rjóða: „Hvörsu virðist heiður og kurt hilmirs skaranum fljóða.“
58. Frúr og jungfrúr allar eittaf honum reyndar sögðu, vissu hann ekki vanta neitt, virðing á hann lögðu.
59. Svinnar sögðu sæla þá,sem hann hreppa næði, því hinn vænsti væri sá í veröldu hvar hann stæði.
60. Lofuðu allar lofðungs kundog lykta ræður sínar; þetta þóknast hýrri hrund; hryggð í brjósti dvínar.
61. Ekki lét sig merkja mær,mektug hafnar stríði, að henni væri í hjarta kær hilmirs sonurinn fríði.
62. Biður ei lofa listug þann,er lasta síðar mætti, segir Pontus seinna kann sínum bregða hætti.
63. Þá var blíða brjósti íbrúði fólgin hreinni; elska Ponto olli því, sem innir bragurinn seinni.
64. Veizlan nýt stóð níu dægur;nokkra leika tamdi skarinn ríkur, rausnar frægur, riddara spil hann framdi.
65. Síðan lyktar hófið hæst;hér með ber til fleira; en af mínum orðum fæst ekki að sinni meira.
66. Mín er tungan máli sljófmeyjunum skemmtan gjalda; á er vandi einum hóf í orðu réttri halda.
67. Fyrir eina hefur oss und með píninnan gjört að bíta; hvör mun mey fyrir hjarta mín hryggð og angur slíta.
68. Þó mér verði, mjúkust mær,af meyjunum auðið fanga, eg efast, hvört sú undin grær ævina mína langa.
69. Auðið verður efalaustí annað sinn mig gifta; á einni hef eg allgott traust angri muni svipta.
70. Sú hefur meyja sjálfum mérsvinnust aukið harma; því fyrir norðan hlýt eg hér hryggð að fæða varma.
71. Alla skal eg angur og þráfyrir utan hjartað byrgja; sjaldan stöðvast hamingjan hjá hinum, er jafnan syrgja.
72. Hygg eg bezt að hætta tal,hér frá sögunni venda, því að rímu skýrast skal skeið er komið á enda.
73. Léttur andi launar tallímir fléttu banda, réttur vandi raunar skal rímu séttu standa. |