SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3127)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 7Pontus rímur – sjöunda rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Það mun ráð um Sónar sáð
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Sjöunda ríma Skáhent
1. Það mun ráð um Sónar sáðsjöunda birtist tíma, finna lag og lengja brag; að lyktum byrjast ríma.
2. Förlast svar það forðum varfurðugreitt að anza; bannar mér nú mótkast hér megin, gleði og dansa.
3. Þó skal hryggð úr hjartans byggðhrinda af öllu kappi, so þeirra háð, sem hafa mig smáð, harla fjærri stappi.
4. Ekki neitt skal vera þeim veittvont af minni hendi; hvör veit nú nema háðung sú hjá þeim sjálfum lendi.
5. Þá veitir blítt, má vænta, að stríttvefji oss sorgar böndum; í dag er mér á morgun þér meingjörð vís fyrir höndum.
6. Þá hugsar víst, að hann muni sízthnekkjast sinni gleði, oftast blað um vendist það ætlar sízt að skeði.
7. Lukkan hér svo hvirful erhvörjum til sinna gæða; upphaf blítt plagar einatt títt endir hryggvan fæða.
8. Ræð eg þeim, sem hugsar á heim,hann sig sjálfan þekki, að horfi þá so hamingju á, að hrapi um síðir ekki.
9. Hjólið er valt, það hefur allt,hrapar niður til grunna; það lága þrátt að hefst upp hátt, ef hamingjan þess vill unna.
10. Hvört sem skeður mót eða meður,misjafnt kann að ganga, alla stund á eina lund ævi haldi langa.
11. Annað er það ekki mérog svo gár úr minni; hér eg þá vil herma frá, hvað mér býr í sinni.
12. Það er nú mest í veröld vestvill einn annleiks njóta, enginn mann þorir á minn sann orði fyrir hann skjóta.
13. Hræðist vald, að hann muni gjaldhafa fyrir einörð sína; vinskap meir að meta þeir, en mútur suma pína.
14. Í dómum helzt að vísu velstvilji nokkra manna; það lýsist brátt, ef leitast smátt; lýtin dylja hið sanna.
15. Menn láta stéttir, lög og réttlöstu ei um vanda, ríkja tjón og religión rækslulausa standa.
16. Gleymist guð og gjörvöll boð,sem gaf hann oss að halda; enginn vill fá atvik ill né orða sinna gjalda.
17. Hvað hugsi þér, að hreppum vér,þá herrann kallar dauða; hörðust hér að höndum fer hörmung allra nauða.
18. Óttunst guð, en alls kyns nauðeinatt forðunst ranga, so megum þá með gleði gá fyrir guð í dóminn stranga.
19. Góss og líf sem lönd og víflátum fyrir það rétta; guð mun mest með blíðu bezt bítala aftur þetta.
20. Dæmafjöld að fást ei töld,er forðum daga skeðu, gæfu þá, sem gjörðu fá fyrir guði, er forsvar téðu.
21. Hér er nú eitt, sem hefur mig beitthölda sveit að greina, dikta há nú dýrum frá dæmisöguna eina.
22. Þá veizlan stóð með gleði góðog gaman að hvörju bragði, kom einn mann í klénan rann, kóngi boðskap sagði.
23. „Komin er hér, sem greini eg gjörglöggt með orðum sanna, heiðin sveit, sem hvör mann veit, með hundrað þúsund manna.“
24. Gleðin þraut, en gengu á brautgöfugir menn úr höllu; sorg í stað þeim sótti að og sigrar þá með öllu.
25. Á miðjum dag, þegar minnkar plag,mest vill nú til sorgar; riddari brátt með röskvan mátt ríða sást til borgar.
26. Eðelmenn tveir að tignum þeirtraustum fylgja þegni; hann segir þá brátt af bezta mátt boðskap eftir megni:
27. „Af Babílon að soldáns son,sá sem Códrus heitir, býður þér með britskum her brodda efldist sveitir,
28. utan þú af þinni trúþenkir nú að láta; minnkast goð og mektar boð; Machúmet skaltú játa.
29. Þar með skatt og skyldur hrattskaltú kóngi gjalda; ef annars sker, þá áttu þér eymd fyrir höndum kalda.
30. Britanníá mun brenna þábeint í logandi eldi; hann deyða mun að mínum grun menn í þínu veldi.“
31. Þá hann Krist sem kunni bystkallsað hafði lengi, hræðslu þó og þögn að sló þegar að kóngsins mengi.
32. Riddarinn var sá harla hár,hraustur og styrkur mætti; öngan fann í heimi hann honum jafn sér þætti.
33. Pontus leit, að lýða sveitlostin var með angri; enginn neitt gaf andsvar greitt ógnaræðu langri.
34. Gengur brátt með hreystihátthann fyrir kónginn ríka, segir sér raun í reiðilaun ræðu heyra slíka.
35. Féll á hné sá firrist spé,frænings þaktur grjóti, orðlofs bað og öðlast það andsvar greiða á móti.
36. Pontus gekk að gildum rekk,gjörir svo orðum venda: „Þín mun trú, sem tjáðir þú, taka einn vondan enda.
37. Veit mín trú mér virðist þúvalla af manni skera; tækdur er hann, sem telur þig mann tungulausan vera.
38. Enn vill guð úr allri nauðöllum sínum bjarga; herra þinn skal, heiðingi minn, hafa til fæðu varga.
39. Skattagjald og skyldugt valdskulu þér aldrei hreppa; heiður og prís sem hamingjan vís úr höndum mun þér sleppa.“
40. Riddarinn biður sig reyna viðröskva tvo, ef vildi: „Þá hittist nú, hvör helgri er trú og hærra þykir í gildi.“
41. Prúður svar gaf Pontus þar,plagar fús að stríða: „Tveimur er brák að beizla fák burt við þig að ríða.
42. Eðelmann minn, að ofsi þinnekki er hóf að dafni; þenki eg brátt á þennan hátt þinn muni finnast jafni.
43. Ungur em eg á allan vegorrustu við þig heyja; eflaust skal fyrir okkar tal annar tveggja deyja.
44. Hér skal nú fyrir helga trúhætta mínu lífi, láta sjá, hvör meira má; minn guð trú eg hlífi.“
45. Kastar niður kesju viðurklárum sínum glófa: „Mig fýsir þess, og það er ei gets, þína hreysti að prófa.“
46. Anzar þá, sem inni eg frá,öðlings sveininum fríða: „Annan til eg einka vil út með þér að ríða.“
47. „Eg vil einn,“ kvað ungur sveinn,„afl þitt fyrstur kanna; ei eg þarf í styrjar starf styrkinn fleiri manna.“
48. Kóngur hryggð og stóra styggðstrax fékk heyrðra orða; hirðin öll á víðum völl vill honum burtreið forða.
49. „Mig angrar það,“ so kóngur kvað,„ef kurtis skaltú bjóða burtreið þeim, sem ber um heim bezt lof allra þjóða.“
50. Pontus bað hann bregða ei þaðbeint og hugsa skyldi Davíð, þann hinn mikli mann, mjög vel Golíat felldi.
51. „Gjör mig heldur, herrann gildur,hoskur af gæzku þinni, riddara brátt á beztan hátt og bregð ei ætlan minni.“
52. Fylkir slær, sem fregnum vær,frægur riddarann prúða, honum fær í hendur tvær herjans bjartan skrúða.
53. Fékk honum sverð með gylltri gjörð,gripur fannst ei vænni; þar með hest, sem hér kann bezt að hlaupa á jörðu grænni.
54. Frægðir jók og tygjast tóktiggja sonurinn mildi, setur upp hjálm með handar málm og hélt á gylltum skildi.
55. Herskrúð var, sem herrann bar,hulið dýrum steinum; ljóma brá þar langt í frá sem loga af eldi hreinum.
56. Reiðskap þann, sem hafði hann,huldi ægirs ljómi; síðan sprang á söðla Gang siklings arfinn frómi.
57. Þá var blíður furðufríðurfús til hreysti leita; lofaði allur lýðurinn snjallur lofðungs soninn teita.
58. Margur grét, þá mildur hétvið manninn heiðna stríða, aumka, þá so ungan sjá einn á burt vill ríða.
59. Kóngur dýr og drottning skýrdöpur til hans líta, lukku báðu lengi af dáð lofðungs arfa hvíta.
60. Ríður á braut með skart og skrautskrýddur kóngsson pelli; hittast þá sem herm eg frá herrar tveir á velli.
61. Hryggðar ör í hjartað snörhilmirs dóttur fleygði, kvinnum þá stóð kurtis hjá, kóngsson valla eygði.
62. Senda lét sú syrgði og grétsvinnust Ponto merki; gladdist þá, er þetta sá þengils sonurinn sterki.
63. Þakkar brátt á beztan háttbrúði gjöfina fríða, hristi spjót og hleypti á mót hinum, er út vill ríða.
64. Hittast þeir á hestum tveir;heiðna frá eg svo mæla: „Ætlan þín er ekki fín; æskan mun þig tæla.
65. Vel þér einn, hinn væni sveinn,vaskan mann að fylgja, barn ertú að berjast nú og brytja fæðu ylgja.“
66. Prúður svar gaf Pontus þar,plagar ei ræðu langa: „Þú skalt af mér fyrir metnað hér maklig gjöldin fanga.
67. Annað þarf í þetta starfþiljur Óðins döggva en yggla þig eður ætla mig í orðum niður að höggva.
68. Þörf er nú á þína trú,að þér skal Machúmet bjarga; heyrðú mig, eg hugsa þig hafa til fæðu varga.“
69. Keyrði hest sem mátti mestmildings sonurinn harði og hleypti þá sem hraðast má; hvörgi annan sparði.
70. Í gegnum háls á stýfir stálssterkt varð spjót að ganga; Pontus hlaut, þá beztu braut burtstöng sína langa.
71. Heiðni mann að hæfði hannhvössum styrjar broddi; stöngin hrökk, en hlífin klökk hvörgi skarst fyrir oddi.
72. Pontus brá, sem birti eg frá,björtu hlífar grandi; hjálmsins blik að hrepptu svik; hinum vill aukast vandi.
73. Andlit þó hann af honum hjóöðlings son með sverði; undir þær hann af honum fær aldrei græddar verði.
74. Hinn heiðni þá hann hlaut að sjáhlífar litast dreyra, gramdist mest og gjörir nú hest greitt að Ponto keyra.
75. Grimmur högg að gaf þá snögg;greinir þetta ríma; prísast sá, en prúðum þá Ponto lá við svíma.
76. Heiðni brátt að missir mátt;miklar blæða undir; valla hann á hesti kann að hræra sig um grundir.
77. Pontus snart að höggur harthöfuð af gildum búki; þeirra fund á þessa lund þanninn trú eg lúki.
78. Þá var gleði, er það var skeð,þengils dýru mengi, þakka rétt, að það hefi eg frétt, þetta drottni lengi.
79. Hér má sjá, að hamingjan þáhrekur úr sessi fleiri, sem aðra smá hér akta hjá og öllum látast meiri.
80. Pontus frakkur stinnur stakkstrax í höfuðið sverði framan á odd og ber svo brodd beint með slíkum verði.
81. Heiðnum fær í hendur tværhöfuð af riddara fínum, biður þá skjótt með blíðu fljótt að bera herra sínum.
82. „Segið bert, hvað guð hefur gjörtglöggt fyrir mig að verka, að barnið eitt hafi drepið og deytt döglings manninn sterka.
83. Yðar goð mega öngva stoðeinum sínum veita; þrífst ei sá, eg það skal tjá, þeim sem á þau heita.
84. Vor guð einn er ekki seinnöllum sínum bjarga, hjálpar þá hann hrópað er á, heftir ánauð marga.“
85. Ríða þeir nú traustir tveirtiginn kóng að finna, inntu frá því orðna þá, útveg ferða sinna.
86. Angur og þrá, sem inni eg frá,ærna fékk af slíku, ásamt gramur illsku tamur með öllu hans mengi ríku.
87. Sá harmur ber so hjartað sker,að heiðnum minnkar kæti; lykta eg brátt nú þennan þátt, þrifnust jungfrú bæti.
88. Í annað sinn skal ung og svinneiga von á betra, lausnarinn ef líður minn lifnað fleiri vetra.
89. Fyrst að þér eruð haldnar hérhelztar allra kvenna, vilji er það enn af mér þér eignist diktinn þenna.
90. Hvar sú er, sem heiðurinn berhelzt yfir meyjar allar, eigni sér enn óð af mér; það endir á rímu kallar. |