SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3128)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Pontus rímur 11Pontus rímur – ellefta rímaBálkur:Pontus rímur
Fyrsta ljóðlína:Blásinn lituð fúna fyrr
bls.124–136
Viðm.ártal:≈ 1575
Flokkur:Rímur
Ellefta ríma
Ferskeytt
1. Blásinn lituð fúna fyrrfölskann kvæða brenndra, nú skal slökktan hróðrar hyr Hrumnings kveikjum tendra.
2. Fúni síður fræða bálsfeygja mærðar drjúga, ellefta vill ör til máls Ymirs strengja fljúga.
3. Ætlað hef eg til ekki tæpt,orð ef finnast kunna, fengi eg pílu hróðrar hæft hvassa lygimunna.
4. Öfundarhatur eldsins menninnan plagar að steikja, þar til í efni sjálfra senn sinna lyganna kveikja.
5. Annars velferð öfunda mest,eigin nytsemd þenkja, hans fyrir þetta hugsa helzt heiður með lygi krenkja.
6. Þó sig skaði þúsundfalt,þykir engin sneypa; vilja þar til vinna allt í vandann öðrum steypa.
7. Margur hatri hjartað brennthöggur lygunum undir; eg hefi sjálfur á því kennt, ekki sízt um stundir.
8. Nú hefur sá hinn góði guðgefið á loft hið sanna og so frelst af allri nauð og umsát lygimanna.
9. Er eg nú þeirra falsi frá,fjörðinn byggi þenna; en logandi eldur öfundar þá innan gjörir að brenna.
10. Eflaust skeður í allri raun,enn þó dveljist tíðir, jafnan hreppa lygarar laun loksins vest um síðir.
11. Sannast mun í sögunni hér,seint ef hlýða kunnið, að lygin illan ávöxt ber og allt það af henni er runnið.
12. Gendill hét, sem greini eg frá,Galisía barna eini; trausta öngva telja má tryggð með þessum sveini.
13. Þessi leit, að lofðungs kundurlof fékk allra þjóða, þar fyrir eins og heiðinn hundur hatar nú Pontum góða.
14. Mjög var hann að máli framur,margt því spjalla kunni, við alla slægð og tæling tamur títt af hjartans grunni.
15. Gekk til Pontum Gendill leiðurgreitt með slægða gnóttir, bað hann gefa sér hest með heiður, sem hilmirs gaf honum dóttir.
16. Kóngsson býður hvörn sinn hesthonum annan játa, segir sér þyki þennan mest þegnum úti að láta.
17. „Dugi ekki svinnum svo,segi eg af vilja beztum, veljið yður, ef viljið tvo vænsta af mínum hestum.“
18. Gendill segir, að niflungs náðnú sé komin að hvörfum, kvað hann mundi ei drýgja dáð drengs í meiri þörfum.
19. „Vinina ætla eg vant að sjá,vel þó nokkuð skvaldri; þeir munu lítt í þrautum stá, í þörfum dugðu aldri.“
20. Þar næst gekk með grimmd og móðgrams af blíðum fundi; hatur og reiði í hyggju stóð, sem hefnast síðar mundi.
21. Ekki lét í þagnar þeyþessi boð sér nægja, hugsa nú við mildings mey mætan kóngsson rægja.
22. Þá er liðin var lítil stundog lýst var yfir forðum, Elóis hann fer á fund og flimtrar mjúkum orðum:
23. „Ef þú sver með eiði méröngum manni greina, þá mun eg glósa þýðust þér þarfa söguna eina.“
24. En hún hét honum aftur á mótöngum manni segja; sagðist framt hin fríða snót fullvel kunna að þegja.
25. Gendill tók að greina blítt,gjörir so orðum víkja, kvað sér hæfa harla lítt herra kónginn svíkja.
26. „Þar með dóttur og drottning hansdyl þú minna orða; eg er skyldur innan lands öllu vondu forða.
27. Minn herra, Pontus, mælir, aðhann mildings dóttur unni; eg veit það hefur öngan stað út af hjartans grunni.
28. Orðinn er eg þess einka vísaðra þreyr hann brúði; af því fær sú öngan prís, sem einum slíkum trúði.
29. Traustur er hann að tæla frúr,tamur er ungum vandi; eg veit hann er öngum trúr yður í þessu landi.
30. Virðist mér að vísu beztviti það meyjan bjarta, svikara þann sem vítin vest varist af öllu hjarta.“
31. Elóis svarar aftur á mót:„Annan mann eg hugði; hér til hefur við hýra snót haldið trú sem dugði.
32. Öngan hefur hann ærubrestungri girnzt að veita; þeim er lagt til lýta flest, sem lofligastir heita.“
33. „Það er ei gull, sem glóir allt,“Gendill réð svo mæla, „fögur orðin kynjakalt kunna margan tæla.“
34. Jungfrú gjörði glysinu þáog Gendils orðum trúa; hún vill þegar honum í frá heim til borgar snúa.
35. Sinni jungfrú sagði frá,so sem fregnað hafði, og so greindi allt hún þá, sem efni þetta krafði.
36. Sídóníu sorg og styggðsezt í brjóst hið stinna, en lét á sér drósar dygð dýrust ekki finna.
37. Þá hinn ungi kóngsson kemur,klár í hyggju landi, leika alla frúnum fremur, fyrr sem hans var vandi.
38. Svo réð hættlig hryggð og þráhýra jungfrú stanza, að öngu orði meyjan má mildings syni anza.
39. Pontus leit á lauka grundljósust hryggðar dæmi; Elóis hann fer á fund og fréttir, hvað til kæmi.
40. „Veit eg ei, hvað veldur því,“vífið anzar herra, „henni ætla eg hjarta í hryggð muni síðar þverra.“
41. Aftur gekk, sem innt var mér,unga mey að finna. „Hvör hefur böl eitt bruggað þér, bið eg mér að inna.
42. Gjöri þér fyrir guðs míns náð,greinið mér hið sanna; hvört hefur jungfrú á jörðu smál ég eður annar manna?“
43. Sídónía svarar af styggð,so var höst í máli: „Völt er mörgum veraldar tryggð, verður oss glys að táli“
44. Síðan gengur björt á braut,búin með drakons leiri; af henni Pontus orðin hlaut ekki að sinni fleiri.
45. Nú stóð eftir nipinn og hljóðurniflungs fríður arfi; harmi spenntur, harla rjóður hann var eins og karfi.
46. Gekk hann burt með hrelldan hag,hryggðist brjóstið klökkva, allan hafði dvaldan dag; drjúgum tók að rökkva.
47. Sáran beið hann sorgar small,særður harma pílu; ekki Pontus át né drakk og svo leggst í hvílu.
48. Talar hann þá við sjálfan sig,svannann hugsar væna: „Hvör mun vilja myrða mig og minni gleði ræna?
49. Það mun ljóst í þetta sinn,þó það heimurinn kanni; eg veit ei til þess verknað minn vera af heinum manni.
50. Langa nótt og dapran dagdauðans mér þeir stofna; sorgin eykur sáran hag, er seint úr brjósti dofnar.“
51. Þetta kærði kóngsson þrátt,krenktur sætum blundi; lá hann þar so langa nátt, lítt við hag sinn undi.
52. Sídónía svellur stríðaf sorg og stórum ekka; ljúf vill ekki lauka hlíð lengi eta eða drekka.
53. Jungfrú dýr að sakaði sig;svaraði þöllin veiga; „Nú skal enginn mennskur mig manna fá að eiga.
54. Mig hefir tælt einn tignar mannog trúnað brugðið sönnum, en eg elska hugði hann helzt af öllum mönnum.
55. Kólnuð er honum kurt og dygð,krenkjast siðirnir góðir, en bera þótti fremd og frygð fram yfir aðrar þjóðir.
56. Náttúran er næsta svonaum í öllum greinum; skömm er það, ef skal hún í tvo skipta manni einum.
57. Mér hefur fyrri mein og angurmanna bruggað engi; hugsa eg því, að harmurinn strangur haldist við mig lengi.“
58. Löngum stofna lygarnar klaturlýða góðra á milli; þar með trú eg háð og hatur hreinni vingan spilli.
59. Að morgni vaknar kóngsson klár,í kirkju fór til bæna, og eftir á gengur yfrið fár Elóis finna væna.
60. „Elóis, mig undrar fastorð þau jungfrú sagði; fyrir þann stóra hatur og hast hreyfi eg gleðibragði.“
61. Elóis segir öngan staðeigi slíkt fyrir henni: „Ræddi hún til reynslu það; með réttu eg það kenni.
62. Elligar hefur einhvör mannyður rægt við svanna; yður skaða ei það kann; uppi flýtur hið sanna.“
63. Lofðungs son að lýsir þáaf landi skuli hann ríða og unga fyrri ei augum sjá en aftur veitist blíða.
65. Skildi hann so við skemmu mey;skrafinu tók að létta; sorgin byggði sinnu þey; so gekk heim með þetta.
66. Hoskur bjó sinn hest og sveinhilmirs son til ferðar, var á töfin valla nein, vistir tók og gerðar.
67. Fylkir að hann fann í staðog fær honum kveðju blíða, orðlofs bað, hann öðlast það, út um stund að ríða.
68. Seint um kvöld við sjóla skilur,í svefnhús réð að ganga, sinnar ferðar flesta dylur, fer þó Herlant þangað.
69. Kóngsson segir Herlant hátthann vilji burtu ríða, áður en þessi úti er nátt en eftir skuli hann bíða.
70. Herlant biður hann hoskur þáað hugsa ei slíkt né mæla: „Yður skal veitast oss í hjá auður og nóglig sæla.“
71. Pontus segir svinnum þásvo muni standa verða, biður hann öngum inna frá allt sér búið til ferða.
72. Skjótt hann kallar skrifara einn,skipar bréfin rita; enginn skyldi annar neinn af hans burtför vita.
73. Bað ann sína samlagsbræðursenecal hlýðni veita, einkum meðan yfir þeim ræður, öngum boðskap neita.
74. Mildings son um miðja nótt,menntur á listir nógar, hann reið burtu heldur hljótt og hleypti þaðan til skógar.
75. Mýrna stigu og langa leiðlætur hann hesta renna; burtreið hans að gjörist greið; gráta meyjar þenna.
76. Einsetumann átti þareinu klaustri ráða, sem að kvöldi kóngsson var kominn að leita náða.
77. Það var langt frá lýða byggðleynt á þessum skógi; fyrir það voru firrtir styggð, fári og öllum rógi.
78. Næsta hann þar um nokkra hríðnýtur í klaustur dvaldi; bað hann þrátt og sofnar síð, sig í föstum kvaldi.
79. Daga í viku vildi hann þrjávenjast sjálfur að fasta; frjádag hvörn lét herra sá hárklæði næst sér kasta.
80. Hugsar hann lengra hvörgi þáheiman ríða úr landi, að hann mætti allt til sjá, ef yrði á nokkur vandi.
81. Eina nótt aprílis síðillir harmar stungu; fagurt á þeirri fyrstu tíð fuglar loftsins sungu.
82. Orti hann vísur vænar þávill so stytta tíma; nú skal hverfa hróðri frá; hvílist þanninn ríma.
83. Langan hef eg tíma tjáðtoga af Suptungs víti; er því mál, að Þrumnings þráð þögn í sundur slíti. |