SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Sonnetta, óstýfð, síðstuðluðDæmiÉg heyri lækinn, langt að kominn þylja sitt ljóð um fjallið, brekkuna og vindinn um birtuna sem baðar hæsta tindinn, og björgin hvöss í djúpi myrkra gilja. Um fuglana sem fljúga vængjum þöndum og fránum sjónum efstu heima gæta. Og ljósálfa er logum dagsins mæta er lýsa bjart frá himins morgunströndum. Hann fossar yfir klappir, steina og strýtur og strýkur yfir laut í grænum klæðum og rennur framhjá björkum sem þar búa Og vatnið niður brattar flúðir flýtur og flytur tíðindi úr efstu hæðum en flatneskjunni reynist tregt að trúa. Sigrún Haraldsdóttir: Lækjarsonnetta Ljóð undir hættinum |