Dansinn á Sauðárkróki | Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (46)
Bæjavísur  (1)
Gamankvæði  (3)
Tíðavísur  (1)

Dansinn á Sauðárkróki

Fyrsta ljóðlína:Heyrði ég um grímu hop á því
bls.235
Viðm.ártal:
1.
Heyrði ég um grímu hop á því,
í hægu svefnamóki:
að upp sé risin réttkvísl ný,
inn í Sauðárkróki.
2.
Fræðimenn ef fyndust [ath] þér
fremur eftir hlera
fyrstu komin öll hún er
af apynjum og héra.
3.
Apakvendum nagar nær
nóg er um heimsku kæti
enda hefur hún eins og þær
alskyns skrípalæti.
4.
Þegar ég reyni að rekja statt
rök frá hlið sérhveru.
Finnst mér hann Darvin segja satt
í sumra frum tilveru.