Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
KálfárdalurFyrsta ljóðlína:Fjöllin glitra glæsileg
Höfundur:Andrés Hallgrímsson Valberg
Heimild:Stuðlastrengir I. bls.92
Viðm.ártal:≈ 1950
Fjöllin glitra glæsileg
gulls með litum sínum, þar sem áður eyddi ég æskudögum mínum. Kátur oft ég kem til þín Kálfárdalur góði. Þú geymir ennþá gullin mín, gamla æskusjóði. Hart þó lífs ég hreppi stríð heims af göldrum kvalinn, alla mína ævitíð elska mun ég dalinn. Eg í dalnum ungur var, átti saklaust hjarta, drauma marga dreymdi þar dásamlega, bjarta. Ég í sælu fjalla fann fjör í æðum renna þessum gæðum innst ég ann, aldrei næ að gleyma. Þegar loks ég leggjast skal lífsins þrýtur hyggja, kýs ég helst í Kálfárdal kaldur nár að liggja. |