Grettiskvæði | Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga
Kvæða- og vísnasafn Mosfellinga

Innskráning ritstjóra

Grettiskvæði

Fyrsta ljóðlína:Heima á Bjargi hærulangur
Höfundur:Ásgeir Jónsson
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Söguljóð
Heima á Bjargi hærulangur
hafði bú og risnu snjalla,
fékk þar margur maður svangur
magafylli og þjónustu alla.

Þar var Grettir ungur alinn
elskaður af móður sinni,
illkvittinn af ýmsum talinn
er hans höfðu nánust kynni.

Fjarri var hans föðurgaman
fátt var því um stundir yndis,
eigi leið þeir áttu saman
allt varð þeim til sundurlyndis.

Vart hann átti vilja taman
varð því fátt um góðra kynni
kerskni þrungið Grettis gaman
gerði mörgum illt í minni.

Gréttir óx að afli og þreki
ei hann líkist 'kotungonum'.
Enginn maður á hans reki
orkaði neitt á móti honum.

Ef að Grettir gjörðist reiður
í greiðar hans þá engan fýsti.
Hann var hár og herðabreiður
hreyfing sérhver þrótti lýsti.

Yfir hafið út hann sigldi
og þar hlaut hann stóran frama.
En það var sem ólán fylgdi
öllu er hreyfði höndin tama.

Aumt er það hvað örlög vefa
óláns þráð um sterka arma.
Allsnægtir þau einum gefa
öðrum skort og þunga harma.