Kveðið í veikindum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kveðið í veikindum

Fyrsta ljóðlína:Ligg ég einn á sjúkrasæng
bls.40-41
Bragarháttur:Ferskeytt (ferskeytla)
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ligg ég einn á sjúkrasæng,
sviptur návist granna,
með brostnar vonir, brotinn væng
og byrði þjáninganna.
2.
Frelsisbyrinn fer í hönd
frjáls og sigurglaður.
Bíður fars á feigðarströnd
ferðalúinn maður.
3.
Lokaþáttur leiðist mér,
langra nátta sægur.
Þrotinn mátmr allur er,
æðasláttur hægur.
4.
Bráðum feigðar birtir él,
banaþrautir skána.
Geta bæði hor og hel
hampað sigurfána.
5.
Dreg ég fley úr dauðs manns vör
á djúp til sælli landa.
Ef ég brýni á yztu skör,
ekki er langt til stranda.
6.
Þegar lífsins losna bönd,
lokið hérvistinni,
þá mun Drottins hjálparhönd
hjúkra sálu minni.