Innskráning ritstjóra |
AAAA19
Útlitið er alloft tál
að því snúðu baki
oft fær dulist óhrein sál
undir telgdu þaki.
Fyrir handan heljarbrún
heims er vistin þrýtur
hylur ei dökkva hjartans rún
höfðingsvald né mítur.
Hnappa gljár á gullið minnst
gortið valda þrotnar
þegar nárinn nakinn hinst
niður í kistu rotnar.
|