Molar til minningar um Sigurð frá Brún | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Molar til minningar um Sigurð frá Brún

Fyrsta ljóðlína:Austur komstu, áttir þá
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Austur komstu, áttir þá
ævileið í gjósti.
Vetrardagar voru á
vorrar jarðarbrjósti.
2.
En um jól á Jökuldal
jafnræðið við fundum.
Ekki man ég áratal
ofar þessum stundum.
3.
Fannst mér eins og flagg við hún
fagnaðar á degi
þegar ég sá ,,Brún frá Brún”
berast eftir vegi.
4.
Síðan varstu að sveima þar
sólskins úti í flaumi
með þær Pálma merarnar
misjafnar í taumi.
5.
Hestur var þín lífsins lind
ljóðin efst á blaði
áttir minni ást á kind
er mér þótti skaði.
6.
Hákonar þú fórst í föt
féð á beit að níða
þó að gróðurgull og kjöt
gæfi það svo víða.
7.
Vildi ég að fremst og fyrst
færir þú að meta
sauðina með sál og list
sem er hægt að eta.
8.
Þá fórst þú nú bara á bak
beittir klárnum slyngum.
lést mig heyra hófatak
Hofteigs út í Bringum.
9.
Óma lét ég eftir þér
eitthvað létt í stefi.
Skildi að enn er uppi hér
ætt frá Dúfunefi.
-- --
10.
Engan betri Íslending
ætla ég menn þekki.
Málið góða, menntaþing
Misvirtir þú ekki.
11.
Leiðstu engum ljóðarugl
laust við brag og hending.
Þér fannst atóm fluglaus fugl
fjandans eigin sending.
12.
Vonin lands og viskan best
voru þínir sjóðir.
Þetta sem þú þuldir mest
þekkti ég sem bróðir.
13.
Ósk þú sagðist eiga þá
úti í veldi snjóa:
Dyrfjallanna dýrð að sjá
djúpt í Húnaflóa.
14.
Hvar sem þín um landið lá
leið á meðal seggja
frekast komstu auga á
alla þá sem hneggja.
15.
Hófakvak og lofsæl ljóð
léstu fara saman.
Þetta fannst þér þjóðarstóð
Þá var líka gaman.
16.
Af þér höfðu eitthvert sinn
áhyggjurnar fokið.
Kvaðstu vísu komst svo inn
klárnum var þá strokið.
17.
Af þeim stundum ekkert lýgst
einn var beggja salur
sem þá hefðu saman vígst
Svartár – Jökuldalur.
18.
Farðu vel ég fylgi þér
fram á heiði ríka
þar sem gráa grjótið er
gull fyrir okkar líka.
19.
Þeir sem af sér brjóta byggð
byrja á nýju skeiði.
Munu rækta af tröllatryggð
tún við Herðubreiði.
20.
Ef þeim móti illa snýst
öld með dár og spjöllum
gæti þeim þá verið víst
Víti í Dyngjufjöllum.
21.
Íslands fjalla ástin hrein
á það vildi minna
Sigurðar að sólarstein
seggir eiga að finna.
22.
Sá er efst af öllum flýgur
Út um víðernið;
Allir þegja þegar ´ann hnígur,
Það er lögmálið.


Athugagreinar

Slegið inn eftir Hestinum okkar  - Dagbjartur Dagbjartsson