Stökur förukonunnar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Stökur förukonunnar

Fyrsta ljóðlína:Rændu´sólu rökkur dimm
bls.89
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Rændu´sólu rökkur dimm
reynslu skóla ganga
því mig ólu örlög grimm
undir njólu vanga.
2.
Fyrr var hali heitbundin
hlýju falin vona
ein við dalamóann minn
má ég hjala svona.
3.
Sá sem átti ylinn þann
undi smátt þeim hita
allt fór lágt því eg og hann
aðeins máttu vita.
4.
Heimsins blíða er söm við sig
syrtir lýða veginn
kaus hann Fríðu, en kvaddi mig
köldu níði sleginn.