Úr vígsluljóðum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Úr vígsluljóðum

Fyrsta ljóðlína:Hringt er inn helgi
bls.22. des. 1964
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

 
I.
Hringt er inn helgi
heilagra tíða.
Kunngjöra klukkur
komu Drottins.
Streymir Guð blessun
staðinn yfir.
Fyllist heilagt hús
heilögum anda.

II.
Við boðskap bjartra fræða
skal barnið finna það
að hátign lífsins hæða
á heima á þessum stað.
Sjá, Ijósin björtu Ijóma
og leiftra í helgum yl.
Vér sendum sigurhljóma
vorn sólstaf, himna til.

III.
Láttu, Drottinn, boðskap þinn birtast hér
ber það fram til sigurs, sem fagurt er.
Streymi helgar lindir, þitt lífsins mál
lífgi, veki sumar í hverri sál.
Blessa litlu börnin við skírnarskál
skírnarheitið festu í líf og sál.
Blessa þá, er krjúpa á knébeð hér
kenn þeim ungu veginn, að fylgja þér.
Blessa þá, sem knýta hér kærleiksbönd
kom og réttu vegmóðum sterka hönd.
Kom og leggðu lífgrös við sollin sár
sættu oss við dauðann og þerra tár.
Þú ert, Drottinn, öllum hið æðsta skjól
auðnu vorrar gimsteinn og náðarsól.
Dýrstu strengir hjartnanna helgist þér
heill og gleði lífsins svo finnum vér.

IV.
Lofið höfund lífsins, hans dásemd aldrei dvín
hans dýrð oss vermir lengur en sólin rís og skín.
Sjá, englafylking heilög, svo himinbjört og fríð
um helgidóminn skipar sér og verndar alla tíð.


Athugagreinar

Úr vígsluljóðum
Ort við vígslu Prestbakkakirkju í  Hrútafirði.
Mynd og texti Álfheiðar Magnúsdóttur:
https://www.flickr.com/photos/alf07/21261979963