Þegar Björg litla kom í sveitina | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þegar Björg litla kom í sveitina

Fyrsta ljóðlína:Brá sér litla Björg í sveit
bls.184
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Brá sér litla Björg í sveit
bað um vor að nýju
varð það engin ullarleit
inn í geitarstíu.
2.
Heyrði margan hörpuóm
hlýddi á fuglakvæði.
Vorperlu og vetrarblóm
vel hún þekkti bæði.
3.
Fór til ánna gleðigjörn
gáði vel að öllu.
Sá hún endur synda á tjörn
sveima veiðibjöllu.
4.
Köldu lambi kom á fót
kom því líka á spena.
Umhyggjunnar einstök hót
aldrei virtust réna.
5.
Kom að hreiðri hún í laut
- heilla fyrirboða -
Yndis mikils oft hún naut
eggin smá að skoða.
6.
Þegar börnin þutu á legg
þar í hreiðrum inni
um þau hlóð sem varnarvegg
vináttunni sinni.
7.
Fékkst við kálfa kófsveitt hún
kátan leik þau hófu
er þeir stukku út um tún
upp með sperrta rófu.
8.
Stundum vann hún það og það
þægð og yndi sýndi.
Bjó um rúm og reisti tað
rusl í eldinn tíndi.
9.
Fór á bak á Brún og Rauð
Björg með geði hressu
ánægjan þá upp úr sauð
af öllu saman þessu.
10.
Björg var hrifin hér um bil
hvar sem steig hún sporið.
Svona líf á sveitin til.
Svona er blessað vorið.