Kirkjuvígslan á Hvammstanga 21.7. ´57 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kirkjuvígslan á Hvammstanga 21.7. ´57

Fyrsta ljóðlína:Þér til dýrðar, Guð minn góður
Heimild:Glæður.
bls.64
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þér til dýrðar, Guð minn góðu
nú glaður hljómar lífsins óður
er þér skal vígja heilagt hús.
Biðjum heitt um blessun þína
að bjartir geisla megi skína
á hvern sem hingað kemur fús.
Hér finni þreyttur frið
þitt föðurhjarta við
æskan leiðsögn
og aukinn mátt
að horfa hátt
og heit sín efna í friði og sátt.
2.
Það sé ljúfust andans iðja
að ákalla þig lofa og biðja
er að oss berast efni vönd.
Þegar vinir vinum hverfa
og vonbrigðin að hjörtum sverfa
þá rétt oss þína hjálparhönd.
Lát rýmkast sjónarsvið
að sjá hin æðri mið -
dýrðarljómann
í ljóssins höll
og lífsins fjöll.
Heyr vora bæn - vér biðjum öll.
3.
Haltu vörð um helgidóminn
já, haltu vörð um dygðablómin
sem leita skjóls við lífsins tré.
Tengdu oss með tryggðabandi
þá birtir yfir þjóð og landi
sig dimmir skuggar draga í hlé.
Lát gróa sorgarsár
lát sérhvert þorna tár
orð þitt hljóma
um alla jörð
svo ein sé hjörð
með þúsundfalda þakkargjörð.