Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
StaðreyndFyrsta ljóðlína:Menn tala um frið og frelsi
Höfundur:Björn G. Björnsson
Heimild:Glæður. bls.60
Viðm.ártal:≈ 0
1. Menn tala um frið og frelsiog fullkomnun ríkis hans er boðaði sælusumar í sóllöndum kærleikans. 2. En hvað er sem augað eygirí umheimsins stefnuskrá og vakandi samviska segir um sjálfra vor innsta þrá? 3. Er hatursöld hnigin til viðarog heiðskírt að ysta pól? Er konungur kærleiks og friðar þar kominn á veldisstól? 4. Nei, enn er með ýmsu vegiðog upphugsuð svikaráð með hrokalund dár að dregið hans dýrðlegu konungsnáð. 5. Já, enn er hann hæddur, hrakinnaf heiftræknum, villtum lýð. Já, negldur á krossinn nakinn af níðingum ár og síð. 6. Og enn er ljúgvotta leitað að lama hans guðdómsvald. En samviskan síst getur neitað að sálin þarf lausnargjald. 7. Hún býður oss kné að beygjaog brotin að kannast við í auðmýkt vor höfuð hneigja og hrópa á líkn og frið. |