Hvað ertu að segja? | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hvað ertu að segja?

Fyrsta ljóðlína:Hvað ertu að segja mér, svanurinn fríði?
Heimild:Glæður.
bls.58
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hvað ertu að segja mér, svanurinn fríði?
Þín söngljóðin dulríku aldrei ég skil.
Ert þú að segja frá ókomnu stríði
eða frá nokkru sem er mér í vil?
Hvað sem þau boða, ég hugfanginn hlýði
hlusta sem barn á þitt vorljóða spil.
2.
Þig, syngjandi vinur, ég velkomin segi
vermdu mitt hjarta við ástarljóð þin.
Syng þú mér huggun á harmanna degi,
hugljúfa kveðju, ef þróttur minn dvín.
Vesalings fuglinn minn, veistu það eigi
að vorið það er ekki komið til mín.
3.
Kalt er það hjarta og kaldur sá staður
sem klökknað ei getur né hýrnað á brá
er svifléttu vængjunum sveiflar þú hraður
í sólfaðmi vorsins um heiðloftin blá.
En duftinu smærri er draumóramaður
með deyjandi hugsjón og vængstýfða þrá.