Landvættir IX - XII | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Landvættir IX - XII

Fyrsta ljóðlína:Hvort eru vættir flúnar, fældar braut
Viðm.ártal:≈ 0
IX.
1.
Hvort eru vættir flúnar, fældar braut
og feðra vorra boðorð hulið sandi
er árla á þjóðlífsmorgni helgi hlaut
2.
Gapanda skyldi ei gini sigla að landi
né gína trjóna, er dreki hélt í vör
kveðjur og athöfn komumaður vandi.
3.
Vel sé þeim enn, sem heim úr fangaför
ei flytur nokkra vöru á hlöðnum byrðing
sem ekki á skylt við eðli Fróns né kjör
4.
því lands og þjóðar svip skal veitast virðing
og varúð gjaldi sá, er honum ann.
Um véin fornu vönduð skyldi girðing.
5.
Hollvættir flýja flysjungsanda þann
sem fornhelg boðorð virðir ei né kann.

X.
1.
Sek er vor kynslóð hollar vættir við
vanmetur ættarbönd og fornar dyggðir.
Brugguð er vél og brotin handfest grið
2.
bundnar af fláum huga refatryggðir
att er í blindu hatri stétt mót stétt
starað á eigin hag um þorp og byggðir
3.
hagræði flokksins framar landsins sett
flaðrað um saurga mund, er æti heldur
metið að jöfnu bæði rangt og rétt.
4.
Sérhlífin öld, er slysi og vammi veldur
voluðum niðjum skilar helsi í arf
feðranna synda seinni kynslóð geldur.
5.
Bjargvættir Íslands, yðar hjálpar þarf
alið upp nýja þjóð við samhent starf.

XI.
1.
Særi eg yður! Saga, veit mér lið
sýn oss á tjaldi þínu skuggamyndir
liðinna alda blóðugt sjónarsvið:
2.
Lítillar þjóðar þungar erfðasyndir –
þjakaðan lýð, er mitt í dauðans raun
eilífa glóð á andans tindum kyndir –
3.
eimyrju regn og eldflóð, bráðið hraun
eyðandi grænni byggð í dali fríðum –
hallæri og neyð í strits og starfa laun –
4.
baráttu fátæks bónda í manndrápshríðum –
barning um dimma nótt við sollið haf –
kúgun og alls kyns kvöl á liðnum tíðum.
5.
Vér höfum goldið leigu og landsskuld af
landinu, er Drottinn feðrum vorum gaf.

XII.
1.
Landvættir fornar! Lítið því til vor
látið oss njóta arfs, er Saga geymir.
Bæn vora helga blóði drifin spor.
2.
Íslending hvern um alla tíma dreymir
óskadraum þann að lifa frjáls.
Bölvaður sá, er sinni ættjörð gleymir.
3.
Sendið oss heldur ís og elfur báls
eyðandi sveit og bæ og fiskimiðum
heldur en erlent ok um beygðan háls.
4.
Látið oss sitja landið vort í griðum.
Lýsið í þjóðarhelgi sérhvern blett.
Veitið oss trausta vernd á öllum sviðum.
5.
Tengið í sanna eining stétt með stétt
starfandi að því að vernda helgan rétt.