Marka-Leifi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Marka-Leifi

Fyrsta ljóðlína:Sólhvarfatíð og vetur úti og inni.
bls.110
Viðm.ártal:≈ 0
Sólhvarfatíð og vetur úti og inni.
Illviðrahrinur krenkja stutta daga.
Áfreðargljáin allan byrgir haga.
Engin þess von, að frosti og hríðum linni.

Fetar sig veginn, einn í ótíðinni,
óskilatrippi milli byggða rekur.
Þunnklæddan mann á hjarni í spori hrekur
hnikar þó ei af leið á göngu sinni.

Liðin er tíð og framar fást ei svör
við farandgestsins spurn, hvort yrði hann fær um
ennþá einn dag að hitta á veðra hlé.

Aldrei um Vatnsskarð oftar beinir för
útigangsmaður, krýndur silfurhærum,
aleinn á ferð með óheimt vonarfé.