Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Kvæði flutt hr. Sveini Björnssyni að Blönduósi 1.8.´44 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Kvæði flutt hr. Sveini Björnssyni að Blönduósi 1.8.´44

Fyrsta ljóðlína:Dagur nýr á sviði Sögu
bls.64
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Dagur nýr á sviði Sögu
sviptir myrkri, þoku lyftir
breiðir roða um björg og skriður
brosir grund í daggar flosi.
Angan stígur úr engi og túni
ilma runnar í varma sunnu.
Fagnar tunga fuglar syngja
fögrum rómi í sólarljóma.
2.
Stírur falla af augum öllum
ólgar dugur í blóði og huga.
Æska vakin með vösku bragði
víkur að starfi í nýju ríki
græðir hrjóstrug grundar fleiður
grýttar ryður urðir og skriður
stýrir á miðin fögru fari
feiknavélum stjórnar af leikni.
3.
Vísindi á framtíð varpi ljósi
vit skal létta hörðu striti.
Listir fagrar lýsi kostum
lands og þjóðar með snilld í blóði.
Feðratungan falli löngum
frjáls og hrein í stuðla málsins.
Menn og konur signi sannorð
saga lands um alla daga.
4.
Fyrsta Íslands fursta hyllir
fljóð og halur um nes og dali
öndvegishöld í ættarlandi
yfirbjóðanda frjálsrar þjóðar.
Verði honum allar vættir hollar
víki grand frá þjóð og landi.
Fylgi honum bæði heill og heiður.
Höfuð þjóðar skal mæra í ljóði.