Hnitbjörg | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hnitbjörg

Fyrsta ljóðlína:Það niðaði súgur við sæbarða strönd
bls.9
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Það niðaði súgur við sæbarða strönd
og sorti yfir himninum lá -
en dimma í loftinu lá
og tjaldað var skýjum af hulinni hönd
í hvolfþak með einstaka skjá
sem fölleitri skímu yfir lög og um lönd
frá líðandi hálfmána brá.
2.
Til annarrar handar hin háreistu björg
voru hjúpuð í rökkursins feld.

Þar reistu sér goðheimar heilagan hörg
við horfinnar fortíðar eld -

við fortíðar umbrot og eld.

Þar horfir á ferðamann hrikamynd mörg
um hálfrokkið skammdegiskveld.

3.
Eg gönguna þreytti við sæbarinn sand ...
4.
En kolsvartir hrafnar með hásróma garg
5.
Í brimrótsins hávaða á hjarta míns slátt
eg hlustaði skelfdur og beið
eg skynjaði kringum mig myrkranna mátt
sem magnaði ferlegan seið;
það störðu á mig glyrnur og einhverri átt
sem óséðar hvörfluðu um leið
þær leyndust á skuggsælli leið.
6.
Af uggvænum hugsunum sál mín varð sjúk ...

7.
Þá opnuðust björgin og buðu mér skjól ...
8 Þar opnaðist musteri voldugt og vítt ...
með völundar handbragð og snið
af margs konar fágætum skrautgripum skrýtt
er skinu yfir draumfagurt svið
af lýsandi gulli og gimsteinum prýtt
um gotneskar svalir og rið
svo sindruðu svalir og rið.
9.
Frá mosaikgólfum með margs konar flúr
reis marmarasúlnanna fjöld
með kringsettu laufbandi kristöllum úr

og kostuleg purpuratjöld -
með glitofin guðvefjartjöld
með upphleyptar dýrlegar myndir á múr
og merlaðan altarisskjöld.