Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
NjólaFyrsta ljóðlína:Það er bágt að standa í stað
bls.15
Viðm.ártal:≈ 0
SkýringarMan should live and move harmonious as the sacred stars above Shelley: The Witch of Atlas 1. Það er bágt að standa í stað.Stefnir sérhvað marki að því af fleygiferð og afli fast er mörkuð tímans braut. Mörg er erfið anda þraut aldrei stans í lífsins tafli. Undir gömlum gleymskuskafli geymt er margt sem frægðir hlaut. 2. Sveiflur ljóss frá sólnafanssífellt stíga mjúkan dans. Eðli ljóss er eins og hljóma alda, sem um geiminn fer. Þar er strengur stjarna hver stilltrar hörpu þræðir óma. Hvar sem hnattaleiftur ljóma lofsöng út um geiminn ber. 3. Meginóður undraheimsómar skært til jarðarheims. Silfurtæra sendir hljóma Síríus út við hvelsins skaut. Sérhver röðull hlutverk hlaut hættir loftsins duna og ljóma. Heyrist fjarst úr útheim óma undirspilið - vetrarbraut. 4. Árla fædd af svásri sólsvífur jörð um stjarna ból kotung lík í knatta veldur korni á Stórasandi geims aðeins dropa í hyljum heims hlaut þó neista af lífsins eldi. Hver þann arf í hendur seldi himins barni í svifum eims. 8. Hvað er jarðarbarnsins böl?Blindrar frumu stundar kvöl þegar efnið viðnám veitir vilja þeim, er heiminn skóp stillti í eining stjarnahóp steinsins dufti í kristall breytir sem í dýru djásni skeytir demant hvern í sniðið gróp. 9. Sköpun rækir himnesk hönd.Hristir andinn duftsins bönd. Upp af dumbu efni rísa æðra stig á lífsins braut. Bræðast gull úr grjóti hlaut grómsins lögmál stefnu vísa. Fram til þroska að lokum lýsa liðin reynsla, sigruð þraut. 10. Efnið lögum hlýða hlaut.Hnatta fjöld var skorðuð braut. Samstillt eind úr sundrung náði settri leið við tímans ós. Þannig einnig liggur ljós lífsins þroski að æðsta ráði. Hann er fyrstu frævum sáði frjóvgi úr aflsins lindum jós. |