Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Jón „góur“Fyrsta ljóðlína:Hann hafði sjóinn sótt
Höfundur:Rúnar Kristjánsson
Heimild:Húnavaka, ársrit USAH. bls.2009 bls. 69
Viðm.ártal:≈ 0
1. Hann hafði sjóinn sóttséð og reynt svo margt og mikið margan dag og nótt. Aldrei sýnt í hættum hikið haft í augum dirfskublikið sannað seiglu og þrótt. 2. Er hrannir risu háttog hrakinn farkost Ægir yfir gnæfði með ógnarsterkan mátt. Jón þeim vanda vaskur hæfði víkings tök á stýri æfði hress og hló þá dátt. 3. Hann títt var talinn afen traustur sigldi um sjói alla og seglum fylli gaf. Seltan rauk um skör og skalla skorti í engu hæfni snjalla á ferð um heljarhaf. 4. Menn dáðu hugmóð hanshetjubraginn sem hann sýndi í svörtum ólgufans. Sjómannshæfnin sönn þar krýndi segg er aldrei frá sér týndi kjarki kjarnamanns. 5. Hann sopann sótti íen samt hann fullur sigla kunni og sýndi list í því. Djarfur jafnt á djúpi og grunni dansaði hann létt með Unni og kyssti kólguský. 6. En síðast sótti hann feigðsvekkt og haldin þorsta í þela þótti lundin beygð. Til að ná í tár á pela tók hann koddann sinn og fela síst kaus sára hneigð. 7. Hann götu gekk í búðgalt með kodda kaupmannstárið kynnti ei skiptin prúð. Þó var opið sálarsárið sá hann hvernig drykkjufárið gleypti hár og húð. 8. Um sál hans sviði rannsem þar gróf sig öllu innar uns hann broddinn fann. Gætti hann þá ei götu sinnar gekk með tárastraum um kinnar, þoldi ei verkinn þann. 9. Borði féll hann frá,flæddi um hann flatan síðan fljótt hin litla á. Sigrað hafði hann sjóinn víðan séð hann þar í flestu stríðan staðist storma vá. 10. En þarna hann drukkinn dódauður lá í litlum polli lítinn spöl frá sjó. Með hann enginn manndrápsbolli mátti fara í Ægis solli en þetta drap hann þó. |