Lyngheiðin rauð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Lyngheiðin rauð

Fyrsta ljóðlína:Lyngbrekku ljóði andar angan-megn
bls.280
Viðm.ártal:≈ 0
1. Lyngbrekku ljóði andar angan-megn
ómvana þeyr um grænar hlíðarrætur.
Sólskinin fjöllin ilma eftir regn
upprisin sæl úr faðmi djúprar nætur.
2.
Blágullnar hæðir baðast ljósi og yl.
Blessaða líf, sem við mér hlær og grætur.
Lyng, lyng og aftur lyng um drag og gil
lifandi feldur vefst um mína fætur.
3.
Lynghrísla smá við kleif og klettaþil
kyrrlát við sól og átök frosts og snjóa -
hvaðan ert þú og hvers vegna ertu til?
hvert er það afl sem knýr þig til að gróa?
4.
Systir mín ung, sem ert svo hugstæð mér
alin á rústum löngu dauðra skóga -
hvaðan er ég og hvers vegna er ég hér?
hvers vegna er ég að yrkja í þínum móa?
5.
Andvörp hins liðna að eyrum mínum ber
ókomnir dagar birtast sjónum mínum.
Ráðgáta heilla heima felst í þér
hvísla þú að mér leyndardómum þínum.