Vorvísur til Blöndu | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vorvísur til Blöndu

Fyrsta ljóðlína:Jökulbrúður, dóttir hrjóstur heiða
bls.80
Viðm.ártal:≈ 0
1. Jökulbrúður, dóttir hrjósturheiðahug minn seiða
þínar þúsund raddir - sérhvert vaxta-vor.
Er af heiðum blíðir vindar blása
um Bug og Ása
verður öllum elfum létt um spor.
2.
Langan vetur varstu karlæg kerling
kuldahrelling
um þig alla fór við stormsins hörpuhljóm.
Alltof lengi batt þig fjötur fanna-
fylkinganna.
Rífðu þig úr íssins krepptu klóm!
3.
Láttu jökulstraum þinn brjóta og bramla
Blanda gamla.
Neyttu kyrkitaka, sprengdu hverja spöng!
Láttu vetraríssins álög rofna
klakann klofna.
Brýndu róminn betur. Syng þinn vígasöng!
4. Þitt er valdið, þitt er ríkið Blanda:Þessa sanda
skópstu í reiði þinni - yfir langri leið -
Burt með tötra, leystu lífs þíns fjötra,
láttu gnötra
bergsins blökku veggi við þinn svarta seið.
5.
Láttu jakabrot á raðir rísa
rjúfðu ísa!
Djarft skal dansinn stiginn, lið þitt kynngikátt!
Láttu straumsins fræknu fáka geisa
föxin reisa -
og til víga vikivakann stíga dátt!
6.
Kveddu brag úr bernskudalnum mínum.
Brott úr þínum
vegi hindrun víktu, gefðu engu grið.
Seiddu til þín ærslalæki alla
efstu fjalla, -
bættu hverri bunu við þitt vaska lið.
7.
Blanda, þú ert ímynd alls sem líður, -
alls sem bíður
vorsins vaxtar - eftir dægur ísalöng.
Orka þín er orka heilla þjóða
alda móða.
Þú ert drottning dagsins. Syng þinn vígasöng!