Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
BlandaFyrsta ljóðlína:Bugðast eftir botni tveggja dala
Höfundur:Rúnar Kristjánsson
Heimild:Húnavaka, ársrit USAH. bls.2003 bls. 43
Viðm.ártal:≈ 0
1. Bugðast eftir botni tveggja dalaBlanda gamla, héraðsáin mín. Þegar loks hún brýst í sæinn svala sérstaklega í straumi hennar hvín. Myndast röst á breiðum báruskafli beint í djúpið elfan varpar sér. Hvergi smeyk hún mætir Ægis afli ósinn vellur líkt og suðuhver. 2. Með sér ber hún mótstöðu við hafiðmiklu gagni fær hún skilað þar. Vestur undir Vatnsnes gráa trafið vefur sig um kaldan Húna mar. Fyrr um ána fóru menn á hestum, fundu leiðir sem þeir nefndu vöð. Taka núna brýr við bílalestum, breytinganna sókn er ærið hröð. 3. Samt er áin enn sem fyrr til staðareins og forðum þylur hún sinn brag. Stöðugt fram í sæinn hún sér hraðar hlutverk sitt hún þekkir enn í dag. Hvergi tæp á tímans mælilínu, talar sitt í gegnum straum sem hvín. Milli bakka býr að veldi sínu Blanda gamla, héraðsáin mín. |