Minnimáttarkennd | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Minnimáttarkennd

Fyrsta ljóðlína:Þjóðin hrósið þakkar
bls.18
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Landkynning
1.
Þjóðin hrósið þakkar
þegar gestur langt að
lofar land og flakkar
líka nokkuð um það.
Sé á vegi svakkar
svo er sneitt hjá þeim stað
beygt fyrir blautt vað.
2.
Okuð þjóð um aldir
óvön, hrífst við lof flátt
komi norðan kaldur
kannast hún við sinn mátt
þá er þyngri galdur
þegar klingir hrós dátt
að meta það mjög smátt.
3.
Elda-land og ísa
oft á tíðum forsmáð
gleðst er gestir lýsa
gæðum þess og telst náð
veg þeim fá að vísa
vítt um landið ósáð -
þykir nú þjóðráð.