Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
FjallgöngumaðurFyrsta ljóðlína:Mér varð oft í æsku litið
Höfundur:Jónas Tryggvason
Heimild:Húnavaka, ársrit USAH. bls.1968 1968 bls. 31
Viðm.ártal:≈ 0
1. Mér varð oft í æsku litiðupp á fjallsins bláu tinda. Þangað hug minn sífellt seiddi sumarfegurð bjartra mynda. Eftir því, sem árin liðu, eldheitari varð sú þrá að sigra bergsins bröttu leiðir brúninni að ná. 2. Ýmsum fannst sem engum mundiauðnast slíka þraut að vinna. Deigra manna æðruorðum engu hlýt ég þó að sinna. Upp skal klífa á efsta tindinn og ekki sakast neitt um það þótt góðrar ferðar enginn óski er ég legg af stað. 3. Morgunsólin hæsta hnjúkinnhjúpar gullnum töfraeldi. Yfir bláum eggjum hvílir undrafegurð, tign og veldi. Meðan aðrir ennþá sofa, einn ég reika fjallsins til. Við mér blasa brattir hjallar bergsins gráu þil. 4. Hlær mér kapp í heitum barmi,hér mun engum duga að letja. Áfram skal en ei til baka. Örðugleikar skapið hvetja. Þar, sem ekkert er að vinna engum sigri er hægt að ná; þar, sem engu er unnt að tapa, ekkert vinnast má. 5. Urðin liggur brött að bakibergið rís, er ofar dregur. Hér er örðugt yfirferðar ekki er þetta ruddur vegur. Þeim, sem troðnar götur ganga gleymist oft, að hverja slóð sem er greiðfær öllum orðin einhver fyrstur tróð. 6. Tyllt er hönd á tæpar syllurtánum beitt í naumar sprungur lengra, ofar, áfram miðar yfir torsótt hrikaklungur. Vöðvar stælast, viljinn harðnar við að sigra hverja raun. Oft hafa þyngstu erfiðleikar átt sér dýrust laun. 7. Loks við augum brúnin blasirbjörtum vafin sólararmi. Þrönga hef ég götu gengið gleðin ólgar mér í barmi. Það, sem unga æsku dreymdi uppfyllingu hlotið fær stund, sem áður oft ég þráði er nú loksins nær. 8. Tigna fjall, sem ávallt áttirinnstu þrá í huga mínum. Engin laun þó önnur hljóti en þá dásamlegu sýn finnst mér vera að fullu goldin ferðin upp til þín. 9. Stend ég einn á hæsta hnjúknumhrifinn töfrum morgunstundar. Eldur sólar sindrar yfir sveitinni, sem ennþá blundar. Finnst mér eins og yfir landið einhver rétti bjarta hönd hönd, sem blessar yfir alla innst úr dal að strönd. |