Kvöldljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kvöldljóð

Fyrsta ljóðlína:Eitthvað er það
bls.176
Viðm.ártal:≈ 0
Eitthvað er það
sem innstu hnúta bindur
og leysir þá aftur
létt eins og vindur.

sem strýkur um þak
á þessum fjallakofa
án þess nokkur heyri
- meðan allir sofa.

Eitthvað er það
sem engin hugsun rúmar
en drýpur þér á augu
sem dögg - þegar húmar.