Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Í vorFyrsta ljóðlína:Í nótt urðu allar grundir grænar í dalnum
Höfundur:Guðmundur Böðvarsson
Heimild:Ljóð dagsins. bls.131
Viðm.ártal:≈ 0
1. Í nótt urðu allar grundir grænar í dalnumþví gróðursins drottinn kom sunnan af hafi og hafði um langvegu sótt. Og fljótið strauk boganum blítt yfir fiðlustrenginn og bláar dúnmjúkar skúrir liðu yfir engin í nótt. 2. Ó, börn, mælti jörðin á svifi í sumarsins skýjum nú fer sólin að skína ó, munið að vera ekki deilu- og drottnunargjörn. Hver kenndi yður, smávinir, misskipting mömmunnar gjafa og að metast til dauða um hvern blett minna landa og hafa? ó, börn! 3. Þann draum hef ég elskað að varðveita börn mín og blómsturí blessun og friði stutt augnablik þeirra við eilífðarhafsins straum með jafnháum rétti til vaxtar í vorinu bjarta frá vöggu til moldar ég gaf hverju óspilltu hjarta þann draum. - - - 4. Í dag straum hún enn yfir enni mitt blæmjúkri hendií ástúð og trega og rödd hennar var eins og hljóðlátt og huggandi lag: Vertu rólegur, drengur minn, dagur og nótt skulu mætast því draumar þíns hjarta í nótt, ó, þeir skulu rætast í dag. |