Steingrímur Davíðsson skólastjóri sextugur 17/11 1951 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Steingrímur Davíðsson skólastjóri sextugur 17/11 1951

Fyrsta ljóðlína:Sextugan með sómavöld
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1951
1.
Sextugan með sómavöld
segir fréttin drenginn
því skal engan undra í kvöld
að ég gríp í strenginn.
2.
Til að helga vini veig
von og andi hlýni
fékk ég mér úr flösku teig
fullri af brennivíni.
3.
Þó ég geti þegið staup
- það skulu allir vita
ég kveð ei um þig karlaraup
keypt fyrir spón og bita.
4.
Þess ég einkum minnast má
mæt voru okkar kynni
- þau eru líka upphaf á
ævisögu þinni.
5.
Út í lífið örðug spor
áttum við að leggja
þó var hlýtt og heiðríkt vor
í hugum okkar beggja.
6.
Öðrum skyldi á það bent
sem örvarnar létu vaða
það var ekki heiglum hent
að hitta þig til skaða.
7.
Hafðir á hreinum tökum trú
telst því minni skaðinn
þó þú gamla brytir brú
og byggðir nýja í staðinn.
8.
Hérna tíðum hefur þú
hækkað og breikkað veginn.
- Skyldi þér lánast listin sú
líka hinu megin.
9.
Andans gnoð við öldurót
aldrei léstu rifa
- siglir byrinn með og mót
meðan þú færð að lifa.
10.
Svona ertu í sókn og vörn
sálar hlýr og glaður
faðir, sem átt fjórtán börn
fyrirvinnumaður.
11.
Þó að heldur hausti að
og halla taki degi
sýna störfin styrku það
- þú stendur enn á teigi.
12.
Þegar dagur dómsins rís
og dægurskeið er runnið:
Allvel hefur óskadís
æviþráðinn spunnið.
13.
Enn á teigi eigðu bið
uns að degi hallar:
sest þá eigin sigra við
sólarmegin vallar.
14.
Lifðu heill með innri eld
öll þín börn og frúin.
- Lokið er mínu ljóði í kveld
líka er flaskan búin.