Minning | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Minning

Fyrsta ljóðlína:Þegar sól um sundin skín
bls.110
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þegar sól um sundin skín
svala aprílmorgna
björtum vængjum vitjar mín
vorið okkar horfna.
2.
Greiddi ég þitt gyllta hár
grönnum meyjarhöndum
meðan þröstur ferðafrár
flaug að Íslands ströndum
3.
Ef að sé ég sólbjart hár
í sveip frá enni hlýju
vakna í brjósti þúsund þrár
þess að mega að nýju
4.
gegnum þetta gyllta hár
greipum mínum renna.
Svona lengi lofnarglóð
lætur hjartað brenna.