Bláir eru dalir þínir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Bláir eru dalir þínir

Fyrsta ljóðlína:Bláir eru dalir þínir
bls.82
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu
heiður er þinn vorhiminn
hljóðar eru nætur þínar
létt falla öldurnar
að innskerjum
- hvít eru tröf þeirra.
2.
Þöglar eru heiðar þínar
byggð mín í norðrinu.
Huldur býr í fossgljúfri
saumar sólargull
í silfurfestar vatnsdropanna.
3.
Sæl verður gleymskan
undir grasi þínu
byggð mín í norðrinu
því sælt er að gleyma
í fangi þess
maður elskar.
4.
Bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu.