Þú ert | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þú ert

Fyrsta ljóðlína:Þú ert yndið mitt yngsta og besta
Viðm.ártal:≈ 0
Þú ert yndið mitt yngsta og besta
þú ert ástarhnossið mitt nýtt
þú ert sólrún á suðurhæðum
þú ert sumarblómið mitt frítt
þú ert ljósið sem lifnaðir síðast
þú ert löngunar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði
þú ert ósk - þú ert óskin mín.



Athugagreinar

Guðm. landlæknir gaf út sína einu ljóðabók Undir ljúfum lögum í okt. 1918, en þá var Spánska veikin að skella yfir. En Guðmundur hélt samt áfram að yrkja og þegar yngsta barn hans, Þórdís Ósk, fæðist árið 1922 yrkir hann til hennar kvæðið Þú ert.
Heimild. Gunnar Þór Bjarnason Spánska veikin Rv. 2021