Pólitíkin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Viðm.ártal:≈ 0
Upp þó hilli andans svið
ífært gyllingunni
þankann hryllir þráfalt við
þræla spillingunni.
1.
Stjórnir þjóða þyrla á loft
þrautamóðu bárum
þeirra slóð er ærið oft
ötuð blóði og tárum.
2.
Váleg sýkin vígabáls
vofir ríkjum yfir.
Á valdasníkjum Pétra og Páls
pólitíkin lifir
3.
Út frá haugum hræsninnar
hrædýrs augum gýtur
efst á haugum alls staðar
orkutaugum slítur.
4.
Rits í skærum rök ei sýnd
rógs þar klær um læðast
trú og æra auri klínd
úlfar gærum klæðast.
5.
Æran glatast ýmsum hjá
í því satans vígi
þar sem matað allt er á
öfund, hatri og lýgi.