Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Borgarljósin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Borgarljósin

Fyrsta ljóðlína:Í húminu blika borgarljósin
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Í húminu blika borgarljósin
en bak við er myrkrið svarta.
Finnst þér hér inni allt of þröngt
óreynda litla hjarta?
2.
Oft er vegurinn villugjarn
veslings leitandi hjarta.
Stundum verður að villuljósi
vonanna stjarnan bjarta.
3.
Lofaðu mér að lýsa þér
leitandi, órótt hjarta.
Í húminu blika borgarljósin
- en bak við er myrkrið svarta.