Mansöngur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Mansöngur

Fyrsta ljóðlína:Heim að Fróni hugarsjónir vorar
Heimild:Kvistir.
bls.112
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Heim að Fróni hugarsjónir vorar
ástir knýja yfir sæ
inn i hlýjan moldarbæ
2.
Þar er bjart og þar er margt að líta
glaðar spinna úr þeli þráð
Þóra, Finna´ og Engilráð.
3.
Litli Gestur lítinn hesthúskofa
byggir rétt við rúmstokkinn
reiptagl fléttar húsbóndinn.
4.
Út í horn í hversdags forna kjólnum
litla Þrúða velur veg
vagga brúðu mömmuleg.
5.
Grár af hærum Gunnar rær og stangar
beislistauminn trosnaðan
treyju saumar húsfreyjan.
6.
Hrosshár spinnur Helgi vinnumaður
kveður Grímur geysihátt
Grettisrímur fram á nátt.
7.
Ljúfum hreimi lengi seiminn dregur
almenn gleði er inni þar
undir kveða stúlkurnar.
8.
Ef að Gretti örlög sett um tíma
hafa kosið frið og fjör
fæðist bros á hverri vör.
9.
Þegar aftur eitthvað kraft hans lamar
og af harmi svíða sár
sést á hvarmi blika tár.
- - -
10.
Hér er drottinn, hér er gott að vera
hans því líking heldur vörð
í himnaríki´ á vorri jörð.
11.
Lærdóm mestan, lífsins besta skóla
heimaþjóðin á sér æ
inni´ í góðum sveitabæ.