Baugabrot | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Baugabrot

Fyrsta ljóðlína:Þótt ég biðji Guð um grið
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þótt ég biðji Guð um grið
gráti beiskum tárum
get ég aldrei fundið frið
fyrir liðnum árum.
2.
Stöðugt hlaðast ár við öld
enga ró má finna
líða dagar koma kvöld
kærstu vona minna.
3.
Lít ég yfir liðna slóð
löng og glötuð árin
víða´ í spori bærist blóð
blikar enn á tárin.
4.
Oft eg hef við eld og hjarn
aleinn staðist mátið
get þó ennþó eins og barn
út af litlu grátið.
5.
Mér er sama um horf og haf
hlæ að öllum sárum
hef ég gaman aðeins af
öllu böli og tárum.