Þrá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Það er vorið með æskunnar unað
ástir, faðmlög og söng
sem heitast af hjarta ég þrái
haustkvöldin döpur og löng.
2.
En svo þegar vorsólin vermir
og vöxtur í sál minni býr
þrái ég heitast haustið
húm þess og ævintýr.