Á miðju Atlantshafi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á miðju Atlantshafi

Fyrsta ljóðlína:Nú er oss fjarri fjalley há
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1889
1.
Nú er oss fjarri fjalley há
vor fósturjörðin kæra
þá miðju djúpi Atlants á
vér eigum hvílu væra.
Hér er það fátt, sem oss var tamt
vor augu til að bæra
en himinn guðs er sami samt
og sólin undurskæra.
2.
Oss gufu drekinn ruggar rótt
á Ránar yfirklæði
og drífur skriðið dag og nótt
þótt Dröfn með súðum æði.
Hún nöldrar til vor:Gleym, þú, gleym
því gamla hafíslífi.
En andinn leitar heim, - já heim
þótt hingað aftur svífi.