Til landa minna | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til landa minna

Fyrsta ljóðlína:Ég fer af stað í fátæklegum línum
bls.I
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1902
1.
Ég fer af stað í fátæklegum línum
að finna ykkur kæru landar mínir.
Mér bárust aldrei blóm frá menntahæðum
það búningurinn ljóða minna sýnir.
Þau skreyttu fötin aldrei eignast hefi´ eg
og að mér sama forna kuflinn vef eg.
4.
Við orf og reku oft ég samdi kvæði
og yfir hjörð um sumar jafnt og vetur
en oftast þó í næturvöku næði.
Í næturkyrrð sá andinn jafnan betur
þótt fyrir ljós mitt löngum drægi skugga
í líki svölu hamhleypan á glugga.
10.
Svo flýr minn ljóðafugl á ykkar náðir.
Hann fá þarf skjól því oft blés kalt á móti.
Hans rödd er veik og vængjastúfar hrjáðir
af volki löngu heims í ölduróti.
Þó gegn um allt hann sól og sumri unni
en svartnætti og éljum illa kunni.


Athugagreinar