Morgunn á Laugarvatni | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Morgunn á Laugarvatni

Fyrsta ljóðlína:Suðrið andar þýðum þey
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Suðrið andar þýðum þey
þýtur í laufi skóga.
Vorið breiðir yfir ey
okkar birtu nóga.
2.
Vekja blóm af værum blund
vorsins hlýju nætur.
Daggarskrúð um græna grund
glitrar mér við fætur.
3.
Gljúfralækur léttur hlær
lindir glaðar streyma.
Flyt þú kveðju frá mér blær
fjöllunum mínum heima.