Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
1. Hvíldar er ljúft að leitalangferðamanni hér. Hafnar í hlé að beita, hniginn þá dagur er. Farkostur feyskinn orðinn, formennskan ráðasljó, siglan og byrðingsborðin brákuð af stormi og sjó.
2. Hér er til grafar genginngarpur með hetjulund. Batinn er beztur fenginn banvænni sjúkdómsund. Eggert frá Ósi borinn er hér í vígðan reit. Glæsileg giftusporin gekk hann um þessa sveit.
3. Honum var hollt að kynnasthreinni ég engan fann. Lengi hans munu minnast margir, sem þekktu hann. Hlýlundur, hress og glaður, hjálpfús svo mjög af bar. Djarfur og drenglundaður, Dáður af flestum var.
4. Góðviljans gull hann skildigjaldmiðill beztur var, sífellt í sönnu gildi, soralaust fram því bar. Manndóms af meiðum skar´ann mállausum varnarþil. Arð frá þeim akri bar ´ann eins og þar sáð var til.
5. Héraðsins höfuðbólihann lét sinn kraft í veð. Sat þar á sæmdarstóli, systkinum traustum með. Nú eru skörð í skorin, skjalda - hvar- Ijómi var. Vopnin á burtu borin, borðin sem vörðu þar.
6. Þar var til sveitarsómasótt út á farsæl mið. Glaðværð og gáfnaljóma Gott var að búa við. Húsin þar heita máttu hlaðin um þvera braut. Vísa þar allir áttu Úrbót í hverri þraut.
7. Í þessu ættarrjóðrieftir hér standa tvö, af hinum eldri gróðri. Áður þar voru sjö. Þrír eru burtu bræður bornir, og systur tvær. Á þeirra aringlæður orðstírinn ljóma slær.
8. Geng ég á grafarbakka,góðvininn bezta kveð. Margt á ég þar að þakka. Þannig mun flestra geð. Til hans frá öllum andar ylur af hjartans glóð. Öldur hans æskustrandar yrkja sín kveðjuljóð. Athugagreinar
Kveðjuljóð:
Eggert Arnbjörnsson 1. maí 1883 Var á Stóra-Ósi, Melstaðarsókn, Hún. 1890. Var á Stóra-Ós, Ytri-Torfustaðahr., V-Hún. 1957. Foreldrar hans; Arnbjörn Bjarnason 28.12.1832 - 21. maí 1905 Var á Bæ, Prestbakkasókn, Strand. 1835. Bóndi og hreppstjóri á Stóra-Ósi í Miðfirði. Var þar 1870 og 1890. Ókvæntur. „Góður bóndi og greindur vel“, segir Einar prófastur og bústýra hans; Sólrún Árnadóttir 11. október 1848 Var í Litla-Ósi, Melstaðasókn, Hún. 1860. Bústýra að Stóra Ósi í sömu sveit. |