Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Náunginn á vikutúr - á Bauk um miðnættiFyrsta ljóðlína:Ó mikið skelfing er skemmtilegt hér
Höfundur:Hannes S. Blöndal
Heimild:Nokkur kvæði. Viðm.ártal:≈ 1875
1. Ó, mikið skelfing er skemmtilegt hérskúmandi bjórinn við hlið mína er á koníaksstaupinu held ég í hönd hreinu og tæru og fullu´ upp í rönd.
2. Já, lífið á Bauk það er ljómandi flottþað líf, það er indælt og blessað og gott. Við glóandi veiganna glitrandi skraut gleymi ég heimi og sorgum og þraut.
3. Ef græt eg á Bauk, því eg græt yfir þáað glasinu botninn eg fundið hef á og til þess að bæta úr bölinu því eg blindfylli koníaksstaupið á ný.
4. Já, svona gengur það dag eftir dagEg drekk og eg raula mitt uppáhaldslag er svartnættið kemur og sólin ei skín eg sef fram á borðið – og dreymi um vín.
5. Er bindindishetjurnar benda mig áog bindindisræðurnar streyma þeim frá eg hlæ bara að þeim af huga og sál í hreinasta rommi eg drekk þeirra skál.
6. Af föðurlandsást aðeins fer eg á Bauk(stingur út dramminn)af föðurlandsást eg úr staupinu lauk því um leið og eg hressi og lífga minn koll landssjóðnum borga eg ölfangatoll.
7. Og heimurinn kannski þó kalli mig svíneg kæri mig ekkert, en sötra mitt vín þó segi´ hann eg slæpist, eg veit að ég vinn sem verkmaður trúr fyrir landssjóðinn minn.
8. Eg heiminn í þoku og hillingum séfyrir honum eg aldrei skal beygja mín kné því hann er ei annað en hræsni og tál heill sé þér Bakkus! Eg drekk þína skál. 1886 Athugagreinar
Baukur er norðlenskt nafn á veitingahúsi
|