Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
BrekkusækniFyrsta ljóðlína:Ekki nægir okkar vetur
Höfundur:Sigurður Norland, Hindisvík
bls.261-263
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Ekki nægir okkar veturöllum mönnum hér. Veistu hvað? Þeir vilja betur vita hvað hann er. Eða mun þeim öllum falla er hann þokast fjær? Hann er eltur upp til fjalla ef hann fæst ei nær.
2. Margir sækja mjög á jöklamá á götum sjá skíðahúfur, skíðahökla skíði herðum á. Fólkið þráir fönn í hlíðum föt í réttum stíl en þeir ganga ei á skíðum allir fara í bíl.
3. Gott er að eiga skíðaskálaskammt frá jökulfönn sitja þar og mega mála möl og aur og hrönn. Sumar er í sveitum grónum samt á jökulstig ýmsir byltast um í snjónum æfa brun og svig.
4. Syðri landa svækjumollasviftir marga ró svo í byggðum síst þeir tolla sækjast eftir snjó. Vilji flýja víf og gumar væri harla leitt eins hið stutta Íslands sumar ekki er það svo heitt.
5. Útlend tíska okkur ginnirupp á reginfjöll býst ég við, þú brátt þar finnir bjarta skíðahöll. Sumar ætlað öllum börnum Íslands, þrýtur vart meðan ekkert er af stjörnum af því svona er bjart. |