Sorg | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sorg

Fyrsta ljóðlína:Dauðinn kallar dapran gamlan mann
bls.84
Viðm.ártal:≈ 1950
Dauðinn kallar dapran gamlan mann
í dimma og kalda gröf og ég er hann.
En þangað sorgin ekki eltir mig
á öðrum stað hún má nú búa um sig.
Hún verður ekki í vandræðum með það
í veröldinni að finna nýjan stað.
Ég þakka henni þrek og sálarstyrk.
Að þroska lífið hún er mikilvirk.