Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Ljóðabréf til Sigvalda Jóhannessonar í EnniskotiFyrsta ljóðlína:Baksneiddu er braghenduna best að prófa.
Höfundur:Bjarni Jónsson frá Gröf í Víðidal
Heimild:Vísur Bjarna frá Gröf. bls.128-132
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Baksneiddu er braghenduna best að prófa.Æft ég lítið hana hefi en hún er góð í ljóðabréfi.
2. Ég fyrir síðast þakka þér og þínum hesti.Á ég nú, þó annað bresti endurminninganna nesti.
3. Veðrið hvorki vont né gott þann var um daginnþað er nú ekki á allra vegi alltaf sól á hverjum degi.
4. Var ég hræddur við ég myndi velta af baki.Ég hafði ekki árum saman átt við svona reiðargaman.
5. Við fórum ekki að flana neitt í feikna spretti.Ellin hún er okkar taumur æskan bara liðinn draumur.
6. Þá reyndum við að rekja gamlar ruddar slóðir.Manstu upp að Miðhópsseli með var líka vasapeli.
7. Og ekki gekk það amalega austur Hrygginn.Ég eins og forðum fór að reyna að finna mína viskusteina.
8. Þarna ungur oft ég lagði æskusporin.Þá löbbuðu þarna litli fætur löfðu út úr skónum bætur.
9. Er kúalautar – króknum sleppir – kemur bali.Þar reið ég eins og reyndur smali rétt fyrir sunnan Grafardali.
10. Stutt fyrir sunnan Stórahól við stansa náðumum Kóngsdóttur og Kapladali komið var þá okkar tali.
11. Ég virðist orðinn voða slappur við að muna.Eitthvað þó mig er að gruna að þú nefndir Drottninguna.
12. Eftir það við áfram héldum upp að seliþar sem fjöldi af fornum rústum fela sig í grónum þústum.
13. Við grónar rústir gamlar sögur geyma ræturþar sem löngu fúnir fætur forðum eltu bóndadætur.
14. Ríki sitt og raunasögu rústin græturmeðan vorsins vökunætur vefja sig um hennar fætur.
15. Við ferðabúnir fleygðum taumi fínt á makkastigum okkur hægt í hnakka héðan var nú mál að flakka.
16. Um lands var gróður lengi rætt á leið til bakahvort yfir honum ætti að vaka og ærnar strax af lífi að taka.
17. En ekki fannst þér allur gróður alveg dáinnúr grjóti sástu grænu stráin gægjast út í víðan bláinn.
18. Eitt er vont, þótt ekki sé ég um það fróðuraf að mannsins andans gróður er að verða skítafóður.
19. Ég held við ættum heimskunni að hampa meiraallir vilja hana heyra hún á víða móðureyra.
20. Ef ævina ég aftur lifði öðru sinniég syndir margar ætti inni sem ekki voru með í hinni.
21. Frá efninu ég er að verða eitthvað snúinn.Andi minn er ansi lúinn enda sagan nærri búin.
22. Óbrotinn ég aftur komst að Enniskotikvaddi þig með handartaki og hafði góða ferð að baki.
23. Þaðan fór ég fljótt til baka fram í dalinn.Af því ég er alltaf heppinn ekki bilar gamli jeppinn.
24. Ekki komstu okkar til í allan veturþú ættir að láta ef þú getur einhvern tíma viðra betur.
25. Eitt er sem ég ennþá vildi aðeins nefnaað við förum aftur saman aðra ferð, það væri gaman.
26. Þó ellin gjöri eymdarskapnum okkur báðaekki má hún alveg ráða eins og Drottinn fyrir báða.
27. Fyrirgefðu frá mér þetta fjandans þvaður.Ég er að verða vitlaus maður en vertu alltaf margblessaður. |