Óður minn til Blöndu | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Óður minn til Blöndu

Fyrsta ljóðlína:Þú byltist áfram, þú beljar og fossar
bls.64
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Þú byltist áfram, þú beljar og fossar
ó, Blanda sem áður fyrr.
Þig seiða og töfra sjávarins kossar
í sál þér er hamingjubyr.
2.
Þú átt svo margt af minnum og vinum
svo marga hamingjunótt.
Á þínum bökkum, í beljandi ginum
hef ég barn minn fögnuð sótt.
3.
Þú áttir fyrsta óð minn og drauma,
mína ást og hamingjutal
þú töfraðir fram mína tregans strauma
mitt tál og harmahjal.
4.
Hver þín alda var óskadraumur
hver ógn mitt vald og sorg
hvert þitt gjálpur minn gleðiflaumur
mín gæfa og framaborg.
5.
Ó, Blanda, ó Blanda þú sem beljar og fossar
þitt blóð, þitt töfrandi lín
þinn niður, þinn óður, þínir ástarkossar
allt það er hamingja mín.


Athugagreinar

Einnig: Húnavaka, ársrit USAH 1977 bls. 26